Grímupartý og Kareókí part 2
jæja helgin búin og 2ja daga þynnkan einnig,laugardagurinn var algjör snilld,við mættum um hálf átta og sáum fólk fyrir utan ölver en enginn í grímubúning,við röltum nær og sáum bara fólk í landsliðstreyjum og solldið ölvað...nokkrum andartökum síðar mættu svo par sem var greinilega að leita að ammælinu (en ekki í búning) ég var farinn að halda að við elín hefðum látið leika á okkur :/ við röltum loks inn og sem betur fer voru allir nema þetta par og örfáir aðrir í búning :D hjartað byrjaði að slá aftur hehe. Við tókum strax eftir rúnari,ekki annað hægt,forljótur galdrakallabúningur :) eins og örugglega í öllum svona partýum voru 3 stelpur sem fóru bara í adam og evu og keyptu löggubúninga,afmælisbarnið sjálft var norn og svo voru Danny suko úr grease,silvía nótt og bodyguardinn hennar. Ég man ekki einu sinni hvað ég drakk mikið,það var frír bjór og þegar hann kláraðist þá var splæst á mann meira ... enda þynnka í 2 daga :/ besta við kvöldið var þegar ég af öllum (sem sagðist aldrei ætla að gera það) söng með öllum í kareókí...nokkuð góð tilfinning að sleppa sér bara :D
um klukkan 5 hálf 6 fórum við heim að lúlla okkur
ég vill endilega þakka Hönnu og Rúnari fyrir boðið og Elínu fyrir að vera sonna mikil dúlla þegar hún er full (þú veist hvað ég meina )
enda með mynd úr partýinu en annars eru þær allar á flickr hjá mér ;)