Jæja langt síðan ég bloggaði síðast,ég er ekki góður bloggari ;) en allavega þetta helsta sem er að frétta er að ég og elín erum að fara að flytja uppá akranes,hún fór í viðtal hjá norðurál (grundartanga) og þau sögðu að hún gæti fengið vinnuna ef hún vildi...sem hún ætlar að gera :D í gær ákvað ég þá að sækja um líka (er víst auðveldara fyrir mig að fá vinnu þar ef hún vinnur þar fyrir) sótti um í gær og vona fer ég í atvinnuviðtal í næstu viku.
Það eru svo margir kostir við að flytja upp á skaga
verð nær thelmu :) sissi og linda eru að pæla að flytja þangað + fullt af öðru fólki ÓDÝR LEIGA!! tækifæri til að safna fyrir fyrstu íbúð eða húsi vonandi :P
jæja um síðustu helgi var letin allsráðandi,ég man ekki eftir að hafa gert einn hlut sem ekki kallast leti :) en annars byrjuðum ég og elín að horfa á greys anatomy,þetta eru svo snilldar þættir enda erum við komin á seríu 2 núna og getum ekki farið snemma að sofa hehe en svona er þetta bara :O
var að hugsa um jólagjafir og það eina sem mér virkilega langar eikkað í er 500 gb harðan disk og heimabíó,ég er svo mikill nörd i know but these things make me happy :D
mér leiddist svo hrikalega í vinnunni í dag að ég ákvað að breyta um útlit á þessari síðu :) skráði mig einnig á nýja síðu þar sem maður fær borgað fyrir að spila leiki....ahhhh loksins eikkað fyrir mig,vildi helst fá borgað fyrir að spila EVE en mar er ekki alveg það heppinn ;) hehe
um næstu mánaðarmót ætlum við að kaupa okkur nýtt sjónvarp,hitt sjónvarpið er nánast að deyja,við vorum að pæla að fá okkur 32" HD sjónvarp....nenni ekki lengur að horfa á myndir frá gömlu tölvunni (sjónvarpið styður ekki skjákortið í nýju tölvunni)
Ég kom niðrí vinnu í dag og var úti að reykja og á götunni við hliðina tók ég eftir að einhver stelpa stóð bara útá götu fyrir framan bíl og gjörsamlega stöðvaði umferðina,hún stóð þarna alveg ágætlega lengi og svo byrjaði hún bara að rölta niður götuna á miðri götunni....hún ákvað að stoppa neðar í götunni þar sem bílar voru að koma úr öllum áttum...við stóðum eins og límdir við gólfið,við vissum ekkert hvort við ættum bara að hlaupa niðureftir og kippa henni af götunni eða hvað,Heimir og Erla ákváðu að láta vaktmanninn frammi vita af þessu og þá kom í ljós að hún var víst búin að vera að gera þetta solldið mikið undanfarna daga,við biðum og fylgdumst með...þetta hefði getað endað illa afþví að fólk var greinilega pirrað og að flýta sér í vinnuna en þetta endaði bara með að það komu 3 löggubílar (reyndar einn á hjóli) og kipptu henni inní bíl......eftir stutta stund var allt komið í lag